Auður logo
Veldu
Veldu

Kerfisuppfærsla raskar þjónustu

Röskun verður á þjónustu Auðar frá kl 21:00 þann 17. febrúar til og með 20. febrúar.

Áhrif á Auði

Kvika banki er að innleiða nýtt innlánakerfi og þar sem Auður er dóttir Kviku mun þetta hafa áhrif á þjónustu hennar. Þeirra áhrifa byrjar að gæta kl. 21:00 fimmtudaginn 17. febrúar og verða viðvarandi út sunnudaginn 20. febrúar.

Viðskiptavinir Auðar mega búast við raski á þjónustu bæði á vef og í appi. Ekki verður hægt að stofna bundna reikninga, nýjar færslur sem framkvæmdar eru birtast ekki jafnvel þótt millifærslan heppnist, áunnir vextir munu birtast sem 0 á tímabilinu (en að sjálfsögðu er innstæðan að safna vöxtum og kemur rétt tala fyrir áunna vexti þegar innleiðingu lýkur) og búast má við að Auður loki í einhvern tíma um þessa helgi. 

Lokað verður fyrir nýskráningar kl. 21:00 þann 17. febrúar og því þarf fólk að hinkra fram til mánudagsins 21. febrúar ef það hyggst koma í viðskipti við Auði.

Í ljósi alls þessa eru viðskiptavinir hvattir til að ljúka því sem þeir þurfa að gera í Auði fyrir þetta tímabil frá 18. til og með 20. febrúar.

Auður mætir svo fersk til leiks mánudaginn 21. febrúar með nýtt innlánakerfi undir húddinu. Nýja kerfið mun veita meiri sveigjanleika í vöruþróun og auka öryggi með því að færa tæknilausnirnar til nútímans með stöðluðum alþjóðlegum lausnum.

Ef einhverjar spurningar vakna geta viðskiptavinir sent tölvupóst á audur@audur.is