Algengar spurningar

Öryggi
Öryggi
Sparnaðarreikningur
Sparnaðarreikningur
Fyrirtækjareikningur
Fyrirtækjareikningur
Aðgangurinn minn
Aðgangurinn minn
Grænn framtíðarreikningur
Grænn framtíðarreikningur
Hver er Auður?
Hver er Auður?
Bundinn reikningur
Bundinn reikningur
Hafa samband
Hafa samband

Öryggi

Er vefurinn öruggur?
vextor

Öryggi er Auði mikilvægt. Öll samskipti við netbanka Auðar eru dulkóðuð til að tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki í upplýsingarnar þínar. Netbanki Auðar nýtir rafræn skilríki og Auðkennisappið til auðkenningar, en auðkenning með rafrænum skilríkjum er talin ein sú öruggasta sem í boði er.

Mikilvægt er að notendur gæti þess þegar netbanki Auðar er opnaður að vefslóðin sé rétt. Vefur Auðar er vottaður eftir ströngustu öryggiskröfum.

Hvað á ég að gera ef ég týni símanum mínum?
vextor

Ef þú týnir símanum þínum skaltu fylgja einhverjum af eftirfarandi þremur skrefum:

  • Hafa samband við símafélagið þitt og fá það til að loka SIM-kortinu í símanum því þá afturkallast rafrænu skilríkin sjálfkrafa og verða ónothæf.
  • Hafa samband við Auðkenni (útgefanda rafrænna skilríkja) og láta loka rafrænu skilríkjunum.
  • Ef þú átt fleiri rafræn skilríki getur þú skráð þig inn á https://mitt.audkenni.is og afturkallað skilríkin sjálf/ur.
Hvað eru rafræn skilríki?
vextor

Finna má ýmsar almennar spurningar og svör vegna rafrænna skilríkja á vef Auðkennis, https://www.audkenni.is/adstod/spurningar-svor/. Einnig má finna ýmsar gagnlegar spurningar og svör inni á vef ríkisskattstjóra, https://www.skilriki.is/notendur/sos/.

Hvað geri ég ef ég skipti um símanúmer?
vextor

Ef þú skiptir um símanúmer eða SIM-kort þarftu að fá ný skilríki. Það gerir þú með því að fara aftur á skráningarstöð með ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini og fá ný skilríki virkjuð.